3ja bekkjaskemmtun 1964

Veturinn 1964 hélt 3. bekkur í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar skemmtun með miklum tilþrifum. Flest allir nemendur 3. bekkjar tóku þátt. Í fórum mínum eru nokkrar myndir frá þessari skemmtun. Ekki veit ég hver tók myndirnar og væri gaman að fá upplýsingar um það ef einhver veit.
Á myndinni hér getur að sjá frá vinstri. Sigurjón Kjartansson, Árni Jörgensen, Sigurður Hlöðversson, Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir, Albert Einarsson, Kristín Sigurðardóttir, Anna Nílsdóttir, Anna Rögnvaldsdóttir, Kara Jóhannesdóttir, Jóna Möller, Helga Ottósdóttir og Ebba Skarphéðinsdóttir.
|
Kynnirinn

Jóhann Tómasson var kynnir að venju og stóð sig vel eins og við var að búast.
|
Söngpíurnar

Stelpurnar sungu ljúfa söngva sem kættu áheyrendur mjög!
Aftari röð frá vinstri: Kristín Sig, Sigga Vilhjálms, Jóna Möller og Guðrún Stefáns. Með gítar í höndum: Edda Ragnars og Anna Rögnvalds.
|
Skrítlurnar

Ebba Skarphéðins og Helga Ottós fluttu skemmtisögur eða skrítlur eins og það kallaðist og enn kættust áheyrendur.
|
Leiksýningin

Anna Nílsdóttir og Kristín Sigurðar fóru á kostum.
|
Leiksýningin

... og ekki voru þær Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir og Kristín síðri.
|
Leiksýningin

Þá var mætt Guðrún Stefánsdóttir við borðið hjá Kristínu, sem var vinsæl á þessum tíma.
|
Leiksýningin

Nú höfðu mál snúist og Kristín farin af sviðinu en mættur í hennar stað Theodór Júlíusson. Ætli Jóna Möller viti að Daddi sé upprennandi leikstjarna?
|
Tískusýningin

Það var ekki auðvelt að sýna náttföt, en Sigurður Guðmundsson gerði það með mestum sóma.
|
Tískusýningin

Það gustaði um salinn þegar Albert Einarsson sveiflaði kvöldkjólnum.
|