Upphafssíða
3ja bekkjarskemmtun
 Sigló snjór
Sigló-gamlar myndir (1)
Sigló - gamlar myndir (2)
Hátíð í bænum
Sigló KAI 192 sumar 07
Sigló KAI 192 sumar 2008
Savalbu juli 2008
Heimsókn til Íslands
Landslag í október 2008
Email Me


Sigló KAI 192



Vorið 2006 keypum við feðgar (Albert og Einar Þór) 24 feta skemmtibát, sem nú heitir Sigló og ber kennistafina KAI 192. Sigló er með klefa bæði frammí og afturí. Það fer vel um okkur um borð. Rúmgott svefnpláss og eldunaraðstaða. Við erum með kæli og frysti, sem kemur sér vel í sumarhitanum og svo er líka WC-klefi inni að framan. Vélin er Mercedes Bens rokkur upp á ca 45 hesta og er sparneytinn á díselolíu. Sigló gengur best á svona 6 - 8 hnútum (mílum) en kemst upp í 11-12 léttur í sléttum sjó. Það er ekki mikið um flókin tæki um borð. Gamall snúningsdýptarmælir er það helsta ef frá er talið nýtt GPS tæki - sem er kortalesari,  þrælgott tæki sem sýnir staðsetningu upp á 1-2 metra. GPS tækið sýnir líka sker og grynningar.

Ég og fjölskyldan fórum í tveggja vikna ferð á Sigló í sænska skerjagarðinn. Meiriháttar ferð.


Einar Þór við stjórnvölinn



Það var í lok apríl að við Einar Þór sóttum Sigló til Tønsberg, en þangað var bátnum ekið á vörubílspalli frá Kristjánssandi.

Báðir höfðum við lokið sérstöku bóklegu námskeiði fyrir skemmtibátastjórnendur, en hvorugur hafði stjórnað báti á sjó. Sigló var hífður niður á sjóinn við aðalbryggjuna í Tønsberg og innan við klukkustund síðar hafði okkur tekist að koma vélinni í gang, fundið bryggjuna með eldsneytisdælunum og vorum á leið út Tønsbergfjörðinn. Þegar utar kom fóru öldur að vaxa. Einari leist ekki á blikuna og bjó sig undir að stefna innan eyja, enda þótt þar væri merkt med grynningum. Ég þóttist hinsvegar vera reyndari og sagðist hefði róið þetta á kajak, öldurnar væru ekki stærri en sem svo.

Ferðin til heimahafnar, sem heitir Stórisandur, gekk ljómandi vel. Stórisandur er í Oslófirði, andspænis bænum Drøbak.


Skipstjórinn



Þegar voraði betur fórum við í lengri ferðir. Fyrsta lengri ferðin var í lok maí, en þá fórum við Kari Mari til Fredrikstad - róleg dagssigling hvora leið. Unni Lise var að keppa á handboltamóti í Fredrikstad og sigldi með okkur heim. Á myndinni heldur skipstjórinn á sjókortum af syðri hluta Oslófjarðar og sænska skerjagarðinum. Gömlu góðu pappírssjókortin er nauðsynlegt að hafa við höndina enda þótt GPS-tæknin sé frábær.

Í höfn á Koster



Koster eyjarnar eru rétt sunnan við landamæri Noregs og Svíþjóðar. Þessar eyjar eru paradís fyrir bátafólk og fjölskyldur sem vilja hafa það gott í sumarfríinu. Á eyjunum eru ekki bílar og helsta farartækið eru reiðhjól á hjólastígum og bátar með ströndum. Það er fátt um búðir og sjoppur á Koster.

Til upplýsinar fyrir tónelskt fólk og sérlega valsunnendur er Kostervalsinn kenndur við eyjarnar í sænska skerjagarðinum.


Unga stýristelpan



Unni Lise fékka að stýra Sigló þegar lítið var um aðra báta.

Á útkíkki



Víða í skerjagarðinum er siglt um þröng sund og þá sigla allir svipuðum hraða. Í fríi er enginn að flýta sér og best að halda röðinni. Næsta höfn er á sama stað hvort heldur farið er hratt eða hægt.

Unni Lise finnst gaman að sitja afturá og fylgjast með hinum bátunum.


Á sundi



Sjórinn var heitur og tilvalið að synda svolítið. Unni Lise og Kari Mari syntu bæði kvelds og morgna og um miðjan dag.

Áttavilt



Hvert eigum við að fara? Sænski skerjagarðurinn er ótrúlega fallegur. Þarna eru óteljandi eyjar og sund og víða hægt að leggja að og labba upp á toppinn á eyjunni.

[ First ] [ Prev ] [ Next ] [ Last ]

Webhotell og domene

|Upphafssíða| |3ja bekkjarskemmtun| | Sigló snjór| |Sigló-gamlar myndir (1)| |Sigló - gamlar myndir (2)| |Hátíð í bænum| |Sigló KAI 192 sumar 07| |Sigló KAI 192 sumar 2008| |Savalbu juli 2008| |Heimsókn til Íslands | |Landslag í október 2008|