Gullfoss við bryggju á Siglufirði

|
Gullfoss við Hafnarbryggjuna

Og við mamma að skoða skipið stóra.
|
Siglufjörður

Ekki gott að segja hvenær myndin er tekin - líklega um 1946. Þarna er mjölhúsið í byggingu.
|
Verkó

Þarna á neðstu hæðinni í ysta verkamannabústaðnum er ég fæddur. Mamma stendur í dyruunum. Húsið er nýbyggt á myndinni fra því ca 1948 - 1950.
|
Fanney

Einhverju sinni átti að gera tilraunir með síldveiði á skutskipi eins og þeir nota í Ameríku. Þá var Fanney keypt og kom norður á Sigló einn góðan veðurdag.
|
Fanney

Ekki held ég að tilraunirnar hafi gefist vel. Fanney var ekki mikið notuð við síldveiðar, en eitthvað við síldarleit og rannsóknir (að mig minnir).
|
Niðurníðslan!

Og svo kom að því að síldin hvarf - eins og við segjum sem ekki viljum viðurkenna að hún hafi verið ofveidd. Nei, hún bara hvarf svona eitt haustið og kom ekki aftur og þá fór allt á verri veginn og bryggjurnar urðu fljótt merki um niðurníðslu í stað athafna.
|
Bryggur eftir 1968

|